miðvikudagur, mars 17, 2004
NÝTT BLOGG!!!!!!!!!!!!!!
ég steingleymdi að setja þetta inn á þetta blogg:)
miðvikudagur, mars 10, 2004
Djöfus skítaveður er á þessu landi...það er búið að rigna í svona viku samfleytt og ekki séð fyrir endann á þessum vibba.
Svo er ekkert annað að frétta en að ég er á leiðinni til Rússlands til þess að drepa línuvörð (...ég neita því að kalla þennann mann aðstoðardómara því það er allt of góður titill fyrir mann á þessu kalíberi) Fyrir þá sem ekki vita um hvað ég er að tala þá er ég að tala um leik Manchester United og Porto í meistaradeildinni í gær þar sem einhver kommúnistahálviti dæmdi rangstöðu á Paul Scholes sem skoraði undir lok fyrri hálfleiks og þar með tók Manchester menn út um alla veröld í þurrt rassgatið og eyðilagði Evrópudraum áhangenda Manchester United!!!!!! Ef það eru einhverjir fleiri sem vilja fara í krossför til Rússlands endilega látiði mig vita.
ást og virðing til allra nema til rússneska kommúnistalínuvarðarins
takk fyrir
mánudagur, mars 08, 2004
Djöfull er maður búinn að vera latur að skrifa á etta drasl.
Það gerðist nú ekki margt þessa helgina, maður fór nú reyndar á djammið á föstudaginn með Óla frænda og það var massívt gott djamm. maður var bara svo þreyttur daginn eftir að maður horfði bara á kassann meiri hlutann af deginum með fútta, þar sem mamma er í London, og fútti hefur nú ekki mikið annað að gera þegar kellingin er úti.
æææ ég nenni ekki að skrifa meira
ást og virðing
mánudagur, mars 01, 2004
Enn ein helgin liðin...þetta er ekkert smá fljótt að líða. Þessi helgi var í svipuðum dúr og hinar, nema að ég fór í útskriftarveislu til Bjarkar Hauksdóttur þar sem hún var að klára B.s í verkfræði....til hamingju með að skvís.
Ég bíð bara eftir sumarbústaðaferðinni sem farin verður þann 26.mars sem er frekar skemmtilegur dagur því ykkar einlægi á víst ammli þann dag. Krakkarnir sem voru með mér í stjórnmálafræðinni ætla að skella sér og á það eftir að verða mjög gaman eins og alltaf þegar maður er að skemmta sér með þeim.
góðar stundir
mánudagur, febrúar 23, 2004
Ég er ekki enn kominn með vinnu það er náttla fyrir utan fimleikana. Ef einhver veit um lausa stöðu einhversstaðar endilega látiði mig vita:)
Ekki mikið að frétta nema að Bomban var að spila í gær í Framhúsinu á móti Fram auðvitað og við fengum okkar fyrsta stig í keppninni en við hefðum getað unnið ef ekki hefði verið fyrir ónefndann mann sem náði ekki að nýta hraðaupphlaup á síðustu sekúndunum...eins og fréttir herma er hann algerlega miður sín og ákvað að hella sér útí bakkus eins og aðrir menn sem hafa klúðrað á ögurstundu...þar er hann í hópi með Stuart Pearce,Franco Baresi og Valda Gríms en vonandi nær hann sér upp úr þessu svaði með hjálp vinalínunnar og annarra velunnara
góðar stundir
sunnudagur, febrúar 22, 2004
Yndis árshátíð
Vá hvað þessi helgi er búin að vera brútal skemmtileg. Árshátíðin á föstudaginn var geðveiiiik.....Við byrjuðum hjá Sjálfstæðisflokknum í kokteil og vorum þar í svona einn og hálfan tíma og fórum svo niður í Viðeyjarferju og 70 manns tróð sér í ferjuna og við lögðum af stað og þegar við vorum komin hálfa leið til Viðeyjar þá komst skipstjórinn að snúa við vegna öldugangs og get ég sagt ykkur að hann var mikill þannig að við snérum við og í leiðinni valt næstum því ferjan....og við fórum í land og svo aftur útí ferju þar sem aðeins 40 manns fór í einu og það gekk miklu betur og við komumst heilu á höldnu þangað...maturinn var góður fyrir utan saltfiskviðbjóðinn sem var í forrétt....síðan spilaði hljómsveitin Kipketer tvö lög og voru þeir magnaðir fyrir utan allt feedbackið sem kom. Svo var dansað eins og ljónið langt fram á kvöld við tónlist JBK eða stebba junior eins og hann er oft kallaður. Svo var farið í bæinn ég fann ekkert fyrir öldunum á leiðinni í bæinn...I wonder why..... svo var maður í bænum bara og trallaði langt undir morgun og svo var farið heim.
Ég verð nú að eigna mér setningu helgarinnar og hún kom fram þegar ég var að tala við Hauk og eins og alþjóð veit er hann og Pabbi hans verulega hrifnir að palestínumönnum enda faðir hans formaður samtakanna Ísland-Palestína....setningin var svona....."Haukur ég verð nú bara að segja þér að múrinn sem ísraelmenn eru að byggja er ekki nógu stór" og þá flippaði minn alveg allverulega
góðar stundir
föstudagur, febrúar 20, 2004
Árshátíð í kvöld.....
meira hef ég ekki um það að segja...
| design by may |